Innlent

Níu þúsund miðar seldust

Magnús Geir Þórðarson
Magnús Geir Þórðarson

Níu þúsund miðar seldust á Gauragang, leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar, á fyrsta degi forsölu í Borgarleikhúsinu í gær. Þetta er nálægt því að vera met, en salan er á svipuðu róli og þegar miðar á Söngvaseið seldust hraðar strax á fyrsta degi en áður hafði þekkst í íslensku leikhúsi.

„Gauragangur vekur greinilega áhuga fólks, og við erum þakklát fyrir það,“ segir Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri þegar hann er spurður um ástæðu þessarar velgengni.

Gauragangur verður frumsýndur 19. mars. - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×