Erlent

Mannskætt flugslys í Indlandi - átta komust lífs af

Átta manns lifðu af og 159 fórust í flugslysi á Indlandi í morgun, þegar farþegaþota hrapaði við borgina Mangalore í suðvesturhluta landsins. Margir hinna átta sem lifðu af slysið eru mikið slasaðir en nokkrir þeirra voru þó með fulla meðvitund og gátu gefið lýsingu á því sem gerðist.

Flugvélin var af gerðinni Boeing 737-800 frá Air India Express og aðeins sex ára gömul. Farþegar segja að skömmu eftir að flugvélin snerti flugbrautina, hafi heyrst hvellur og flugvélin fór út af flugbrautinni og hafnaði inn í skóglendi. Ekki er talið að um sprengingu hafi verið að ræða, frekar að hjólbarði hafi sprungið.

Aðflug að flugvellinum í Mangalore er talið erfitt þar sem flugvöllurinn er á hæð umvafinn skóglendi. Flugstjórinn sem var breskur er sagður þekkja aðstæður á flugvellinum vel og ekkert neyðarkall heyrðist frá flugvélinni áður en slysið gerðist.

Flugvélin var að koma frá Dubai og flestir farþeganna voru indverskir verkamenn. Eitt ungabarn lifði slysið af en fjögur ungabörn og 19 börn voru meðal farþega. Nú þegar er búið að finna 116 lík að því er fram kom á Sky fréttastofunni nú í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×