Umhverfissinnar kúvenda í kjarnorku og erfðabreytingum Óli Tynes skrifar 2. nóvember 2010 13:42 Hvað hef ég gert?
Leiðandi umhverfissinnar hafa sumir kúvent í afstöðu sinni til málaflokka eins og kjarnorku og erfðabreyttra matvæla. Þeir segja nú að þeir hafi rangt fyrir sér í baráttu sinni gegn þeim. Baráttan gegn kjarnorku hafi leitt til fleiri kolakyntra orkuvera sem mengi rosalega. Með því að berjast gegn erfðabreyttum matvælum hafi þeir hindrað að þróunarlönd gætu fætt hungraða þegna sína. Í þætti um umhverfismál á bresku sjónvarpsstöðinni Channel 4 er meðal annars talað við Mark Lynas sem hefur verið í baráttuhópum gegn erfðabreyttum matvælum og loftslagsbreytingum. Hann segir að umhverfissamtök séu að tapa orrustunni um almenningsálitið. Þau hafi gefið út of margar dómsdagsspár og uppblásnar fullyrðingar. Milljarða tonna meiri útblástur Patrick Moore sem var einn af stofnendum Greenpeace er sama sinnis. Um kjarnorkuverin segir hann að þeir hafi haft rétt fyrir sér um að þar hefðu verið ýmis vandamál. Það hefði þó ekki átt að leiða til þess að þeir væru algerlega á móti kjarnorku. Með því hefðu ríkisstjórnir neyðst til að reisa fleiri orkuver sem brenndu kol. Það hafi aukið útblástur gróðurhúsalofttegunda um milljarða tonna. Engir Frankensteinar Mark Lynas var einn þeirra sem rifu upp erfðabreytt korn á níunda áratugnum. Hann segist hafa skipt um skoðun vegna þess að milljónir manna í Bandaríkjunum hafi nú borðað erfðabreytt matvæli í meira en tíu ár án þess að verða meint af. Þessir umbreyttu umhverfisverndarsinnar segja að síðan þeir viðruðu hugarfarsbreytingar sínar hafi hin hefðbundnu umhverfisverndarsamtök byrjað að rægja þá.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira