Atvinnuleysi mælist 7,5 prósent 2. nóvember 2010 06:00 Vinnumálaráðherrann Ursula von de Leyen lak tölum til fjölmiðla á miðvikudag sem bentu til mun minna atvinnuleysis en raunin varð. Hér ræðir hún við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands.Fréttablaðið/AP
Atvinnuleysi mælist nú 7,5 prósent í Þýskalandi, sem merkir að rúm 3,1 milljón manna er þar án atvinnu, samkvæmt upplýsingum hagstofu Evrópusambandsins. Óendurskoðaðar tölur sem Ursula von der Leyen, vinnumálaráðherra Þýskalands, lak til fjölmiðla þar í landi á fimmtudag bentu til sjö prósenta atvinnuleysis. Slíkar tölur hafa ekki sést í Þýskalandi í átján ár, síðan árið 1992. Þrátt fyrir það geta Þjóðverjar verið sáttir. Dregið hefur úr atvinnuleysi þar samfleytt í sextán mánuði og er það nú nokkuð undir meðalatvinnuleysi á evrusvæðinu. Þar mælist það 10,1 prósent og hefur aldrei verið meira. Minnst er atvinnuleysið í suðausturhluta Þýskalands, sem áður tilheyrði Vestur-Þýskalandi, eða nálægt fjórum prósentum. Í fyrrverandi Austur-Þýskalandi er það hins vegar yfir tíu prósentum. Financial Times hefur eftir þýskum sérfræðingum aukna atvinnuþátttöku haldast í hendur við bata efnahagslífsins í Þýskalandi. Þar er spáð 3,4 prósenta hagvexti á árinu. - jab
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi Sjá meira