Innlent

Össur vill tala við Clinton um AGS

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hefur óskað formlega eftir fundi með utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillay Clinton. Tilgangur fundarins er að óska eftir aðstoð Bandaríkjamanna til þess að losa um tak Hollendinga og Breta á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og efnahagsáætlunar Íslendinga sem hefur margfrestast vegna Icesave deilunnar.

Þetta kom fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, við fyrirspurn Illuga Gunnarsson, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag.

Endurskoðun efnahagsáætlunar Íslendinga hefur ítrekað verið frestað af AGS og virðist yfirleitt beintengt Icesave-deilunni.

Nýlega lak út leyniskjal sem sagði frá samskiptum starfsmanna utanríkisráðuneytisins á Íslandi og fulltrúa bandaríska sendiherrans hér á landi. Þar kom fram í máli aðstoðarmanns Össurar, að Bandaríkjamenn gætu ekki setið hjá í þessari deilu og horft á ofbeldi Breta og Hollendinga í garð Íslendinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×