Enski boltinn

Joe Hart heldur sæti sínu í marki Manchester City á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joe Hart.
Joe Hart. Mynd/AFP
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, hefur staðfest það að Joe Hart, muni standa í marki liðsins í fyrri leiknum á móti rúmenska liðinu FC Timisoara í forkeppni Evrópudeildarinnar en leikurinn fer fram á morgun.

Mancini er með tvo landsliðsmarkverði í liði sínu, enska landsliðsmarkvörðinn Joe Hart og írska landsliðsmarkvörðinn Shay Given sem var fastamaður í Manchester City liðinu á síðasta tímabili.

Joe Hart fékk hinsvegar að byrja á móti Tottenham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina og átti þá algjöran stórleik í markalausu jafntefli liðanna á White Hart Lane.

„Joe Hart mun spila þennan leik," sagði Roberto Mancini. „Ég þurfti að taka mjög erfiða ákvörðun fyrir leikinn á móti Tottenham því ég er með tvo heimsklassa markverði. Það er erfitt fyrir hvorn sem er að þurfa að sætta sig við það að vera á bekknum," sagði Mancini.

„Ég ber mikla virðingu fyrir Shay Given. Hann er góður maður og ég vill að hann verði áfram hjá okkur en ég mun einnig skilja það sem hann ákveður að gera," sagði Mancini.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×