Beina útsendingin með Chomsky að hefjast í Háskólabíó 28. september 2010 16:45 Chomsky ætlar að ræða framtíðina í orkumálum og hvort besta leiðin fyrir Íslendinga sé að selja álverum ódýra orku.
Nú styttist í að bein útsending með bandaríska rithöfundinum Noam Chomsky hefjist í sal eitt í Háskólabíó. Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis en gríðarlegur áhugi er fyrir honum. Fyrirlesturinn er á vegum Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík. Hann ber yfirskriftina Vonir og væntingar og mun Chomsky meðal annars fjalla um hvað við getum lært af efnahagshruninu á Vesturlöndum. Fjallar hann sérstaklega um Ísland í því sambandi. Umhverfismál verða einnig tekin fyrir, en Chomsky ræðir meðal annars um framtíðina í orkumálum, t.d. hvort besta leiðin fyrir Íslendinga sé að selja álverum ódýra orku. Þá mun hann koma inn á framlag menntamanna til samfélagsumræðunnar. Stjórnandi fyrirlestrarins verður kanadíski kvikmyndagerðarmaðurinn Peter Wintonick sem gerði kvikmyndina Manufacturing Consent: Noam Chomsky and the Media árið 1992, sem er sýnd á RIFF. Noam Chomsky er bandarískur málvísindamaður, rithöfundur og virkur þátttakandi í stjórnmálum. Hann er prófessor emeritus í málvísindum við hinn virta háskóla Massachusetts Institute of Technology (MIT), þar sem hann hefur unnið frá árinu 1955. Við sama tækifæri fara fram pallborðsumræður um Ísland sem hefur gengið í gegnum pólitískar og félagslegar hamfarir undanfarin tvö ár. Í umræðunum verður horft fram á veginn og tilraun gerð til að móta sýn á hlutverk ólíkra afla samfélagsins til að hafa áhrif til lengri tíma, og hvernig við sjáum fyrir okkur að Ísland geti átt afturkvæmt úr kreppunni inn í eðlilegt félagslegt umhverfi þar sem kreppupólitíkin hefur vikið fyrir róttækri pólitík og getu og vilja til umbóta og breytinga. Þátttakendur í pallborðsumræðunum eru: Irma Erlingsdóttir, Guðni Elísson, Sveinn Atli Gunnarsson og Sólveig Anna Jónsdóttir. Stjórnandi er Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki við Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Dagskráin hefst klukkan 17 í sal eitt í Háskólabíó.
Mest lesið Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Innlent Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Erlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Dyravörður tók gest kverkataki Innlent Fleiri fréttir Um 125 börn á þyngdastjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Sjá meira