Tæplega 350 manns hafa látist í Indónesíu 29. október 2010 05:00 Kona sem missti bæði hús og mann í flóðbylgju á Pagai-eyju og dætur hennar tvær gráta missi fjölskyldunnar. Fréttablaðið/AP
Tala látinna á Mentawai-eyjum í vesturhluta Indónesíu var í gær komin í 343 eftir leit björgunarsveita. Stjórnvöld telja að hundruð manna sem enn er saknað kunni að hafa borist á haf út með flóðbylgjunni sem þar reið yfir 25. október. Eldgos í fjallinu Merapi á eyjunni Jövu hófst stuttu eftir jarðskjálftann sem hratt flóðbylgjunni af stað. Gosið sem kostaði 33 lífið hjaðnaði um stund, en hefur nú hafist aftur, þótt engar fregnir séu um frekari mannskaða eða eignatjón. Í gær var haldin fjöldaútför meðan drunurnar í Merapi-fjalli lægði. Náttúruhamfarirnar, sem áttu sér stað á ólíkum stöðum Indónesíu á innan við sólarhring, hafa reynt verulega á viðbúnað almannavarna. Eyjabúar á Mentawai, þar sem þriggja metra há alda reið yfir og sópaði burt húsakosti, hafa hafst við undir tjalddúkum. Fjöldi fólks hefur líka flúið til fjalla og neitar að snúa aftur heim af ótta við að önnur flóðbylgja ríði yfir. Stjórnvöld segja að rándýrt viðvörunarkerfi sem sett var upp eftir flóðbylgjuna sem reið yfir á annan í jólum 2004 hafi bilað fyrir mánuði síðan þar sem því hafi ekki verið almennilega við haldið. Þýskur starfsmaður verkefnisins segir aftur á móti að kerfið hafi virkað, en vegna þess hve uppruni skjálftans hafi verið nærri Mentawai-eyjunum hafi reynst ómögulegt að vara íbúa þar við áður en flóðbylgjan reið yfir. - óká
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira