Shawcross er ósáttur með eineltið hjá Arsene Wenger Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2010 18:30 Ryan Shawcross er fyrirliði Stoke. Mynd/AFP
Ryan Shawcross, varnarmaður Stoke og nýr liðsfélagi Eiðs Smára Guðjohnsen, er mjög ósáttur við einelti Arsene Wenger, stjóra Arsenal, sem heldur því fram að hann og Robert Huth stundi það að meiða mótherja sína viljandi. Nýjustu ásakanir Wenger snúast um framkomu þeirra Shawcross og Huth í leik á móti Tottenham á dögunum þar sem stjóri Arsenal sagði þá hafa endalaust reynt að brjóta á Heurelho Gomes, markverði Tottenham. Wenger sagði að þeir litu frekar út fyrir að vera rúgbý-leikmenn en fótboltamenn. Upphafið má þó rekja til þess að Ryan Shawcross fótbraut Aaron Ramsey í leik Stoke og Arsenal í fyrra en Wenger var afar reiður út í Shawcross eftir þann leik. „Ég er ekkert á móti því að fólk hafi sínar skoðanir en ég sé enga ástæðu fyrir hann að tjá sig um leik hjá öðrum liðum hvað þá að taka út einstaka leikmenn eins og mig og Huthy," sagði Ryan Shawcross í viðtali við The Sentinel. „Ég er búinn að horfa á leikinn aftur og ég kem aldrei nálægt Gomes. Ég hélt að ég hefði ekki gert það en var ekki alveg hundrað prósent viss og horfði því aftur á leikinn til öryggis," sagði Shawcross. „Wenger hefur augljóslega eitthvað mikið á móti mér. Hann hefur líka alltaf eitthvað á móti Stoke, hvort sem það eru leikmennirnir eða stjórinn. Gagnrýni hefur almennt ekki áhrif á mig nema ef um er að ræða falskar ásakanir eins og þarna," sagði Shawcross.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Sjá meira