Innlent

Verðhækkanir OR éta upp sparnað Landspítalans

Verðhækkanir Orkuveitu Reykjavíkur hækka rafmagns- og hitareikning Landspítalans um fjörtíu milljónir króna á næsta ári - og éta upp allan sparnað spítans, og meira til, en rekstrarhagnaður hans nam um 35 milljónum króna á fyrri helmingi ársins.

Orkuveitan hækkar gjaldskrá sína um allt að 40% þann 1. október og kveðst knúin til þess. Þó er ekki lengra síðan en í nóvember á síðasta ári að fjármálastjórinn skrifaði grein í Fréttablaðið og sagði þar að geta Orkuveitunnar til að standa við skuldbindingar sínar væri sterk. Síðan hún skrifaði þessi orð hefur krónan styrkst umtalsvert og skuldbindingar því lækkað.

Einn af stærri orkunotendum höfuðborgarinnar

Þar kemur einnig fram að yfir 70% landsmanna eigi í viðskiptum við fyrirtækið. Landspítalinn er einn af stærri orkunotendum höfuðborgarinnar. Rafmagns- og hitareikningur spítalans hljóðar upp á tæpar 200 milljónir króna yfir árið en þar á bæ hafa menn skoðað hvern krók og kima í rekstrinum til að spara og meðal annars náðist fram tíu prósenta sparnaður í rafmagnsnotkun á þessu ári.

Starfsfólki Landspítlans hefur tekist að spara 7,5 milljón króna með því einu að vera vakandi fyrir rafmagnsnotkun og slökkva til að mynda á tölvum og ljósritunarvélum í lok dags. Með hækkun Orkuveitunnar gufar þessi sparnaður upp og gott betur.

Leiðinlegt og sárt

„Við reiknum með því að á ársgrundvelli muni þetta kosta okkur um 40 milljónir króna en á þessu ári um tíu milljónir," segir Björn Zoëga, starfandi forstjóri Landspítalans.

Sparnaðurinn sem náðist fram í orkunotkun á þessu ári verður því að engu. „Auðvitað finnst mér það leiðinlegt og sárt en við værum verr sett ef við hefðum ekki byrjað á þessu sparnaðarátaki okkar," segir Björn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×