Íslenski boltinn

Alfreð og Dóra María best

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alfreð Finnbogason er leikmaður ársins.
Alfreð Finnbogason er leikmaður ársins. Mynd/Anton
Alfreð Finnbogason, Breiðabliki, og Dóra María Lárusdóttir, Val, voru kjörin leikmenn ársins á lokahófi KSÍ í kvöld.

Efnilegustu leikmennirnir voru Kristinn Steindórsson, Breiðabliki, og Dagný Brynjarsdóttir Val.

Ólafur Helgi Kristjánsson, Breiðabliki og Freyr Alexandersson, Val, voru bestu þjálfararnir.

Dómari ársins var valinn Gunnar Jarl Jónsson í karlaflokki en Guðrún Fema Ólafsdóttir í kvennaflokki. Úrslit kjörsins má finna hér fyrir neðan.

Karlar:

Lið ársins: Ingvar Kale (Breiðablik, James Hurst (ÍBV), Jón Guðni Fjóluson (Fram), Elfar Freyr Helgason (Breiðablik), Kristinn Jónsson (Breiðablik), Baldur Sigurðsson (KR), Jökull Elísabetarson (Breiðablik), Ólafur Páll Snorrason (FH), Kristinn Steindórsson (Breiðablik), Atli Viðar Björnsson (FH), Alfreð Finnbogason (Breiðablik).

Prúðasta liðið: Breiðablik

Prúðasti leikmaðurinn: Fjalar Þorgeirsson, Fylkir

Stuðningsmenn ársins: Selfoss

Konur:

Lið ársins: María Björg Ágústsdóttir (Valur), Embla Sigríður Grétarsdóttir (Valur), Katrín Jónsdóttir (Valur), Lidija Stojkanovic (Fylkir), Thelma Björk Einarsdóttir (Valur), Katie McCoy (Stjarnan), Sara Björk Gunnarsdóttir (Breiðablik), Dóra María Lárusdóttir (Valur), Hallbera Guðný Gísladóttir (Valur), Rakel Logadóttir (Valur), Mateja Zver (Þór/KA)

Prúðustu liðin: Valur og Stjarnan

Prúðasti leikmaðurinn: Sandra Sigurðardóttir, Stjarnan

Stuðningsmenn ársins: Þór/KA

Heimild: Fótbolti.net




Fleiri fréttir

Sjá meira


×