Fimmta jafntefli United - öll úrslitin úr enska Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2010 15:57 James Morrison og Michael Carrick eigast við í dag. Nordic Photos / Getty Images
Manchester United gerði 2-2 jafntefli við West Brom á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fimmta jafntefli United á tímabilinu sem er þó enn taplaust eftir átta leiki. United byrjaði mjög vel í leiknum og komst yfir með mörkum þeirra Javier Hernandez og Nani. Wayne Rooney byrjaði á bekknum en það virtist ekki koma að sök. Svo fékk United tvö klaufaleg mörk á sig í upphafi síðari hálfleiks. Fyrst skoraði Patrice Evra sjálfsmark og svo Somen Tchoyi jöfnunarmarkið eftir að Edwin van der Sar mistókst að grípa einfalda fyrirgjöf frá vinstri. Rooney kom inn á um stundarfjórðungi fyrir leikslok en allt kom fyrir ekki og West Brom fagnaði góðu stigi á útivelli. Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn fyrir Bolton sem vann 2-1 sigur á Stoke í Íslendingaslag. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 77. mínútu. Allt stefndi í jafntefli hjá liðunum þar til að varamaðurinn Ivan Klasnic skoraði sigurmarkið, eftir innkast frá Grétari Rafni. Markið kom í uppbótartíma en Klasnic hafði samt tíma til að fá tvisvar gula spjaldið eftir markið og þar með rautt. Eiður Smári fékk tækifæri til að jafna metin með skoti úr aukaspyrnu á hættulegum stað en hann skaut í varnarvegg Bolton. Arsenal vann 2-1 sigur á Birmingham eftir að hafa lent 1-0 undir. Jack Wilshere fékk að líta rauða spjaldið i liði Arsenal undir lok leiksins fyrir ljóta tæklingu. Arsenal er þar með komið upp fyrir United og er í öðru sæti deildarinnar með fjórtán stig, rétt eins og United, Manchester City og Tottenham sem vann 2-1 sigur á Fulham í dag. Þetta var fyrsta tap Fulham á tímabilinu en sigurmarkið var afar umdeilt og var Mark Hughes, stjóri liðsins, brjálaður eftir leikinn. Newcastle tókst að bjarga stigi gegn Wigan eftir að hafa lent 2-0 undir. Fabricio Coloccini skoraði jöfnunarmark Newcastle með skalla í blálok leiksins. Þá gerðu Wolves og West Ham jafntefli, 1-1, og liðin því enn í tveimur neðstu sætum deildarinnar. Chelsea er á toppnum með átján stig og á leik til góða gegn Aston Villa í dag. Úrslit dagsins og markaskorarar: Bolton - Stoke 2-1 1-0 Chung-Yong Lee (22.) 1-1 Rory Delap (48.) 2-1 Ivan Klasnic (92.)Newcastle - Wigan 2-2 0-1 Charles N'Zogbia (22.) 0-2 Charles N'Zogbia (23.) 1-2 Shola Ameobi (72.) 2-2 Fabricio Coloccini (90.)Wolves - West Ham 1-1 1-0 Matthew Jarvis (10.) 1-1 Mark Noble, víti (53.)Manchester United - West Brom 2-2 1-0 Javier Hernandez (5.) 2-0 Nani (25.) 2-1 Patrice Evra, sjálfsmark (50.) 2-2 Somen Tchoyi (55.)Fulham - Tottenham 1-2 1-0 Diomansy Kamara (30.) 1-1 Roman Pavlyuchenko (31.) 1-2 Tom Huddlestone (64.)Arsenal - Birmingham 2-1 0-1 Nikola Zigic (33.) 1-1 Samir Nasri, víti (41.) 2-1 Marouane Chamakh (47.)
Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Sjá meira