Lífeyrissjóðir setji á fót íbúðaleigufélög 16. október 2010 05:00 Þrátt fyrir sprengingu á leigumarkaði eru litlar upplýsingar til um hann, að sögn formanns Félags löggiltra leigumiðlara. Fréttablaðið/Stefán „
Bankar og Íbúðalánasjóður verða að taka sig saman og búa til félag sem kaupir fasteignir og setur á laggirnar þróað leigufélag. Það gæti verið í eigu lífeyrissjóða, verkalýðsfélaga eða fjárfesta," segir Svanur Guðmundsson, formaður Félags löggiltra leigumiðlara og framkvæmdastjóri leigumiðlunarinnar Húsaleiga.is. Fréttablaðið sagði í vikunni teikn á lofti um að íbúðafélög að norrænni fyrirmynd, sem keypti fasteignir og leigði þær áfram, væru í mótun. Svanur tekur undir að þörfin sé mikil á þróuðu íbúðaleigukerfi; fram til þessa hafi það verið bundið félagslegu leiguhúsnæði sveitarfélaga og Búsetakerfi auk leiguíbúða háskólanema. Nú hafi almenni leigumarkaðurinn eflst mikið. Þeir sem hafi misst íbúðarhúsnæði sitt í hendur bankanna síðustu mánuði þurfi á leiguhúsnæði að halda. Þá kjósi margir að leigja fremur en að kaupa fasteignir. Bankarnir hafi ekki komið til móts við þörfina; þeir virðist fremur vilja eiga tómar íbúðir en bjóða þær til leigu. Svanur segir að samtímis því sem eftirspurn eftir leiguhúsnæði hafi aukist umfram framboð skorti mikilvægar upplýsingar um hana. „Ég barðist fyrir því heillengi að láta taka saman upplýsingar um fjölda leigusamninga," segir Svanur. Af því varð ekki og því liggur ekkert fyrir um stöðu leigumarkaðarins. Svanur segir að þegar íbúðaverð hafi tekið að rjúka upp fyrir nokkrum árum hafi verið nauðsynlegt að stíga fyrstu skrefin í átt að breyttu íbúðaleigukerfi. Það hafi ekki verið gert. Afleiðingin varð sú að fólk sem kom sér upp þaki yfir höfuðið með fasteignakaupum sökk í skuldafen. Í raun hafi verið hagstæðara að leigja í stað þess að kaupa fasteign. „Umræðan um leigumarkað hér hefur verið þröngsýn. Það er út af því að mikill hluti þeirra sem hafa verið í leiguhúsnæði hefur verið í félagslega kerfinu. Fólk hefur fram til þessa talið íbúðaleigu jafngilda því að kasta peningum á glæ. En hrunið hefur fengið fólk til að hugsa öðruvísi," segir hann. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira