Innlent

Tíu í tíu löndum fengu 10 þúsund

Húsakynnin fengu andlitslyftingu í sumarblíðu.
mynd/alcoa á íslandi
Húsakynnin fengu andlitslyftingu í sumarblíðu. mynd/alcoa á íslandi
Samfélagssjóður Alcoa færði tíu félagasamtökum í tíu löndum tíu þúsund Bandaríkjadala í styrk sunnudaginn 10. október. Það er um 1,2 milljónir íslenskra króna. Björgunarsveitin Ársól á Reyðarfirði varð fyrir valinu á Íslandi.

Sveitin fékk styrkinn afhentan þegar starfsmenn Alcoa, ásamt fleira fólki, unnu að svokölluðu ACTION-verkefni, sem er sjálfboðaliðaverkefni sem starfsmenn Alcoa standa fyrir. Það fólst meðal annars í því að mála húsakynni björgunarsveitarinnar að innan, klæða eldri hluta hússins að utan og helluleggja stétt við húsið. - shá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×