Obama spáð sögulegum ósigri Óli Tynes skrifar 2. nóvember 2010 11:38 Brosir Obama á morgun?
Það er algengt í Bandaríkjunum að ríkjandi flokkur tapi þingsætum og ríkisstjórastólum í þingkosningunum sem haldnar eru á miðju fyrra kjörtímabili forsetans. Viðsnúningurinn sem búist er við í dag gæti hinsvegar orðið sá mesti í áratugi, ef marka má skoðanakannanir. Það er barist um 100 af 435 þingsætum í fulltrúadeildinni og 37 af 100 sætum í öldungadeildinni. Í kosningunum eru kjósendur að fella dóm um bæði frammistöðu demokrata með meirihluta sinn á þingi og fyrstu tvö ár Baracks Obama í embætti. Með 9,6 prósenta atvinnuleysi og afar hægan efnahagsbata á forsetinn ekki von á góðu. Honum hefur verið legið á hálsi fyrir að þrusa í gegnum þingið ýmsum kostnaðarsömum frumvörpum og ber þar hæst sjúkratryggingarnar sem gerðu hægri menn arfavitlausa. Hægri sveifla Mjög verður forvitnilegt að sjá hvernig Teboðs-framboðinu svokallaða reiðir af. Að því standa allra hægrisinnuðustu republikanar og framgangur þess hefur verið með ólíkindum. Svo mikil eru áhrif þess orðin að jafnvel þótt kosningarnar uppfylli ekki vonir þess um þingsæti mun það hafa áhrif til þess að sveigja republikana enn meira til hægri. Ef republikanar ná meirihluta á þingi verður Obama því í erfiðri stöðu til að koma málum sínum í gegn á þingi. Þetta yrði svosem ekki í fyrsta skipti sem forseti hefði ekki þingmeirihluta. En talið er að þessi meirihluti yrði sérstaklega óþjáll. Mikil harka Harkan í þessari kosningabaráttu bendir óneitanlega til þess. Þetta eru allra dýrustu kosningar sem nokkrusinni hafa verið haldnar í Bandaríkjunum, að forsetakosningum frátöldum. Reikningurinn hljóðar upp á 3,5 milljarða dollara. Það eru næstum 400 milljarðar króna.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York Sjá meira