Tvö mörk Everton í uppbótartíma tryggðu 3-3 jafntefli við United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2010 13:39 Everton-menn sýndu mikinn karakter í dag. Mynd/AP
Everton náði jafntefli á móti Manchester United með ótrúlegum hætti en liðið skoraði tvö mörk í uppbótartíma þegar stefndi í ekkert annað en öruggan sigur Manchester United á Goodison Park í hádegisleiknum í enska boltanum. Mikel Arteta og Tim Cahill skoruðu mörkin tvö fyrir Everton á innan við mínútu. Manchester United hafði farið á toppinn með sigri í leiknum en í öðrum útileiknum í röð glutraði liðið niður forustu á lokamínútunum en það gerðist líka í 2-2 jafntefli við Fulham á dögunum. Everton byrjaði leikinn mun betur og áttu fyrsta hálftímann en þeir gátu þakkað fyrir að staðan var ennþá markalaus þegar Steven Pienaar kom þeim í 1-0 eftir frábæra skyndisókn á 39. mínútu. Tim Howard, markvörður Everton, hafði þá varið nokkrum sinnum frábærlega frá leikmönnum Manchester United þar á meðal frá bæði Paul Scholes og Ryan Giggs. Mark Eveton kom eftir klaufalega varnartilþrif frá Patrice Evra en misheppnuð hjólahestaspyrna hans þýddi að Mikel Arteta slapp einn í gegn. Edwin van der Sar varði frá Spánverjanum en Leon Osman náði frákastinu og sendi hann á Steven Pienaar sem skoraði auðveldlega. Það tók Manchester United aðeins fjórar mínútur að jafna en Darren Fletcher skoraði þá af stuttu færi eftir flott fyrirgjöf Nani frá hægri. Manchester United var þá búið að taka öll völd á vellinum. United hélt áfram uppteknum hætti í byrjun seinni hálfleiks og Nemanja Vidic kom liðinu í 2-1 með flottum skalla eftir fyrirgjöf frá Nani en markið kom eftir að Everton-menn hreinsuðu frá eftir hornspyrnu. Dimitar Berbatov kom United síðan í 3-1 á 66. mínútu eftir að hafa sloppið í gegn eftir frábæra langa sendingu frá Paul Scholes. Berbatov skoraði þarna sitt þriðja deildarmark á tímabilinu og virtist vera að tryggja United þrjú stig. Annað kom þó á daginn. Tim Cahill gaf Everton von þegar 40 sekúndur voru komnar fram í uppbótartíma þegar hann skoraði glæsilegt skallamark eftir fyrirgjöf frá Leighton Baines og í næstu sókn skallaði Cahill aðra fyrirgjöf frá Baines fyrir fætur Mikel Arteta sem tryggði Everton jafntefli. Ótrúlegur endakafli á frábærum fótboltaleik.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira