Didier Drogba tryggði Chelsea enska bikarinn og sögulega tvennu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2010 15:52 Didier Drogba og Ashley Cole fagna hér saman sigurmarki Chelsea. Mynd/AP
Didier Drogba skoraði eina markið í 1-0 sigri Chelsea á Portsmouth í viðburðarríkum úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á Wembley í dag. Markið skoraði Drogba beint úr aukaspyrnu á 58. mínútu og aðeins þremur mínútum eftir að Peter Cech varði víti frá Portsmouth manninum Kevin Prince-Boateng . Chelsea er þar með tvöfaldur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins en þetta var í fyrsta sinn í átta ár sem lið vinnur bæði enska meistaratitilinn og ensku bikarkeppnina á sama tímabili. Arsenal hafði gert það síðast árið 2002 og þá var Ashley Cole, núverandi leikmaður Chelsea, í liði Arsenal. Chelsea-liðið átti fimm skot í tréverkið í fyrri hálfleik en inn vildi boltinn ekki. Besta færið fékk Salomon Kalou þegar hann skaut í slánna úr markteignum fyrir framan opið mark. Didier Drogba átti einnig frábæra aukaspyrnu sem David James varði slánna og niður á marklínuna. Kevin Prince-Boateng fékk kjörið tækifæri til að koma Portsmouth í 1-0 á 55. mínútu en hann lét Peter Cech verja frá sér vítaspyrnu sem Aruna Dindane fékk eftir brot hjá Juliano Belletti. Didier Drogba kom Chelsea í 1-0 aðeins þremur mínútum síðar þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu af rúmlega 20 metra færi en skotið hans fór í stöngina og inn. Frank Lampard fékk möguleika til að innsigla sigurinn á 88. mínútu en hann skaut þá framhjá úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur. Ashley Cole, leikmaður Chelsea setti nýtt met með því að verða bikarmeistari í sjötta sinn á ferlinum en enginn hefur oftar unnið elstu bikarkeppni í heimi. Cole vann þrisvar bikarinn með Arsenal (2002, 2003 og 2005) og var nú að vinna hann í þriðja sinn með Chelsea (2007, 2009 og 2010).
Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira