Ég hef aldrei fyrr séð hús dansa 1. mars 2010 04:00 Mörg hverfi í Santíagó eru illa leikin eftir skjálftann. Skemmdirnar eru þó með minnsta móti í hverfinu Las Condes þar sem Harpa býr.Mynd/Úr einkasafni „
Ég hef aldrei fyrr séð hús dansa,“ segir Harpa Elín Haraldsdóttir, sem var sofandi á heimili sínu, á níundu hæð fjölbýlishúss í hverfinu Las Condes í Santíagó, þegar skjálftinn reið yfir. „Veggirnir bylgjuðust um og allt fór af stað inni hjá mér – sjónvarpið lenti úti í horni og kryddið hentist yfir eldhúsgólfið. En það brotnaði bara eitt glas, sem er til marks um góðan undirbúning hér í Chile. Þeir hafa lært af reynslunni í byggingu nýrra húsa. Eyðileggingin í mínu hverfi er í lágmarki.“ Sömu sögu er ekki að segja af öðrum og eldri hverfum í Santíagó, sem mörg hver eru illa farin. Mörg hús hrundu í miðbænum, þar er nú fjöldi fólks heimilislaus og hafa margir hverjir hvorki aðgang að vatni né rafmagni. Harpa segir náttúruna halda áfram að minna á kraft sinn eftir stóra skjálftann. Um 75 eftirskjálftar hafi riðið yfir sterkari en 4 á Richter. Hún segir engan sjást á götunum í sínu hverfi og varla sé bíll á ferð. Nær allar verslanir séu lokaðar og samgöngur liggi niðri. Í öðrum hverfum, þar sem eyðilegging varð meiri, ríki meiri upplausn. „Fólk er almennt mjög slegið, sorgmætt og óöruggt með framhaldið. Það er enn að reyna að hafa uppi á ættingjum sínum og vinum og reyna að gera sér grein fyrir hvað er í gangi. Það er þó sterk tilfinning fyrir því að nú þurfi þjóðin að standa saman og vinna að uppbyggingunni.“ - hhs
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira