Ríkið gæti setið eftir með hundruð milljóna króna skell Gissur Sigurðsson skrifar 1. mars 2010 12:00 Varðskipið Þór er í smíðum í Chile. Mynd/ Landhelgisgæslan.
Íslenska ríkið gæti fengið hundruð milljóna króna skell vegna skemmda, sem urðu á nýja varðskipinu Þór, sem er í smíðum í skipasmíðastöð í Chile. Auk þess verða margra mánaða tafir á afhendingu þess. Flóðbylgja upp á tvo og hálfan metra gekk inn í þurrkvína þar sem skipið er, sópað undan því búkkunum, sem það stóð á, þannig að nú hallast það allt að 30 gráður í kvínni. Auk þess komst sjór ofan í vélarrúm og dælurými skipsins, sem getur hafa valdið miklu tjóni. Skipið telst í eigu skipasmíðastöðvarinnar þartil afhending fer fram, en nú þegar er búið að greiða fjóra og hálfan milljarð króna inn á kaupverðið og aðeins 700 milljónir ógreiddar. Lögfræðingar eru nú að skoða hvort stöðin er tryggð fyrir ófyrirséðum hamförum, en ef ekki gæti hundruða milljóna tjón lent á íslenska ríkinu. Flóðalda hreif annað nýtt skip úr skipasmíðastöðinni með sér á haf út og er það horfið. Stórtjón varð einnig á stöðinni sjálfri og er talið að allt upp í ár geti liðið þar til hún verður starfhæf á ný. Að sögn Georgs Lárussonar forstjóra Landhelgisgæslunnar verður kannað hvort hægt verður að draga skipið i aðra skipasmíðastöð og klára það þar. Smíðin var á loka stigi og var vonast til að það kæmi til landsins í júni, en nú er ljóst að sú áætlun stenst ekki. Tveir Íslendingar og 4 Danir, eru ytra á vegum Gæslunnar til eftirlits og sluppu þeir allir ómeiddir. Vonast er til að þeir komist til Santiegó í dag, þaðan til New York og svo heim.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fleiri fréttir ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Sjá meira