Innlent

Árni Friðriksson kominn til hafnar

Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson er komið til hafnar. Mynd/ Anton.
Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson er komið til hafnar. Mynd/ Anton.
Hafrannsóknastofnun er nú hætt formlegri loðnuleit og er Árni Friðriksson kominn til hafnar.

Það er því varla von til þess að frekar verði aukið við kvótann, sem er óvenju lítill í ár. Þó munu veiðiskip, í samráði við Hafrannsóknastofnun fylgjast með hvort vesturganga lætur á sér kræla, en dæmi eru um að loðna komi að vestan og beint inn á Breiðafjörð og Faxaflóa, án þess að fara fyrst í kringum landið.

Þrátt fyrir erfitt sjólag, voru skipin að veiðum á Faxaflóa í gær og að minnstakoksti tvö eru á leið til Vestmannaeyja með afla.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×