Innlent

Ríkið styðji við svínaræktina

Í stíunni Nefnd ráðherra þykir álitlegt að svínabúum fjölgi og að þau verði smærri í sniðum en nú er.
Í stíunni Nefnd ráðherra þykir álitlegt að svínabúum fjölgi og að þau verði smærri í sniðum en nú er.

Starfshópur landbúnaðarráðherra leggur til margvíslegar tillögur um hvernig efla megi svínarækt í landinu.

Nefndin segir mikilsvert að auka hagkvæmni íslenskra svínabúa, enda sé það í samræmi við markmið um að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Búa þurfi greininni sambærilegt starfsumhverfi og öðrum búgreinum.

Fram kemur að íslenskir svínabændur njóti óverulegra styrkja úr landbúnaðarkerfinu en bændur í öðrum Evrópulöndum njóta margháttaðs stuðnings. Er bent á að ekki séu til samningar milli svínabænda og ríkis­valdsins í svipuðum anda og í öðrum búgreinum. Leggur starfshópurinn til að ríkisvaldið og svínabændur geri með sér samning um stuðning, starfsskilyrði og samfélagslegar skyldur greinarinnar. - bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×