Kræfir lampaþjófar mynda gróðurhúsin 1. mars 2010 06:15 Hannes Kristmundsson Þjófar klipptu lampana úr tveimur gróðurhúsum sem Hannes er með í miðri Hveragerði. Mynd/Sigurbjörg Gísladóttir „
Ég efast um að ég kaupi fleiri lampa,“ segir Hannes Kristmundsson, garðyrkjumaður í Hveragerði, sem varð fyrir barðinu á þjófum sem stálu frá honum fimmtíu gróðurhúsalömpum. Hannes segir að hann hafi á dögunum farið norður í land í rúma viku. Fljótlega eftir að hann kom til baka hafi hann uppgötvað að þjófar hefðu komið í heimsókn á meðan. Hann segir þetta langt frá því í fyrsta skipti sem lömpum sé stolið af honum. „Þeir eru búnir að hirða af mér á annað hundruð lampa. Eitt skipti hurfu lamparnir úr einu húsinu fyrstu nóttina eftir að ég setti þá upp,“ lýsir Hannes sem kveður lampaþjófana vera ótrúlega kræfa og útsjónarsama. „Ég hef séð þá keyra hér um götur með vídeóvélar að taka myndir af gróðurhúsum og húsasundum. Þeir taka aðstæðurnar upp á myndband og stúdera þetta svo bara heima hjá sér eins og hvern annan handboltaleik,“ segir Hannes. Tjónið er mikið fyrir Hannes því hver lampi kostar að hans sögn um þrjátíu þúsund krónur. Verðmæti lampanna sem var stolið sé því ein og hálf milljón. Hannes kveðst ekki vera tryggður fyrir slíku tjóni því tryggingarfélögin setji mjög stíf skilyrði. „Þetta er hlutur sem ég þarf bara að kyngja,“ segir hann. Jólastjörnur og sumarblóm hafa verið kjarninn í ræktunarstarfi Hannesar. Hann segir engin blóm hafa verið í þeim tveimur húsum sem lamparnir voru en að ræktun sumarblóma sé að fara í gang. „Við vorum búin að safna í tvö hús því sem ekki var ónýtt eftir stóra jarðskjálftann síðast og ekki var þegar búið að stela. Þeir hafa gefið sér góðan tíma og tæmdu hreinlega þessi tvö hús. Þeir hafa bara gengið eftir borðunum til að klippa niður lampana og brutu þá nokkur borð,“ segir Hannes sem telur engar líkur á að þjófarnir stefni á ræktun sumarblóma. „Þetta er ekkert tengt venjulegri garðyrkju, það get ég fullyrt.“ Eins og fyrr segir er Hannes að velta því fyrir sér að endurnýja ekki lampana í þetta skipti. „Þetta þýðir ekkert. Ég held það séu ekki nema tveir eldgamlir lampar sem logar á núna. Þeir höfðu vit á að skilja þá eftir. Ætli maður hætti ekki bara að lýsa nema þá fyrir uppeldisplönturnar.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Fleiri fréttir Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Sjá meira