Erlent

Vilja slaka mjög á reglunum

Bandaríska fjallið St. Helens Þrjátíu ár eru liðin síðan St. Helens gaus með látum og truflaði flugumferð vestra.
fréttablaðið/AP
Bandaríska fjallið St. Helens Þrjátíu ár eru liðin síðan St. Helens gaus með látum og truflaði flugumferð vestra. fréttablaðið/AP

Alþjóðasamtök flugfélaga, IATA, gagnrýna evrópsk flugmálastjórnvöld harðlega fyrir það hve strangar reglur gilda um flug þegar aska frá eldgosum er í loftinu.

Samtökin hvetja Evrópuríki til þess að fara að dæmi Bandaríkjanna, sem hafa mikla reynslu af því að umgangast eldgos og banna eingöngu flugumferð þar sem hættan er mest.

„Bandaríkin hafa yfir marg­reyndum, öruggum og áhrifaríkum aðferðum að ráða þegar kemur að því að kortleggja hættuna af eldfjallaösku,“ segir Giovanni Bisignani, framkvæmdastjóri IATA. „Á undanförnum árum hafa engin váatvik verið tilkynnt í flugi vegna eldgosa á bandarísku flugstjórnarsvæði. Evrópuríkin geta margt lært þarna.“

Bisignani segir flugfélögin hafa misst alla trú á getu flugmálayfirvalda í Evrópu til þess að taka samræmdar og skynsamlegar ákvarðanir í þessum efnum, enda eru sömu upplýsingarnar notaðar á mismunandi hátt í ólíkum löndum þegar ákvarðanir um lokun svæða eru teknar.

„Á hverjum einasta degi þurfa flugfélög að taka ákvarðanir um flug við mismunandi veðurskilyrði,“ segir Bisignani. „Hvers vegna ætti annað að gilda um eldfjallaösku?“- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×