Rooney verður ekki seldur í janúar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. október 2010 13:00 Wayne Rooney var á bekknum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Talsmaður Manchester United segir það alrangt sem margir fjölmiðlar í Englandi halda fram í dag að Wayne Rooney sé á leið frá Manchester United. „Það er algjör fásinna að gefa það í skyn að Wayne Rooney verði seldur í janúar," sagði talsmaðurinn. Sunnudagsblöðin í Englandi halda því mörg fram í dag að þeim Rooney og Alex Ferguson, stjóra United, hafi sinnast og því verði sá fyrrnefndi seldur frá félaginu. Rooney hefur verið í viðræðum um nýjan samning við United en þær hafa farið út um þúfur. Rooney lenti í sviðsljósi fjölmiðlanna í haust eftir að upp komst um framhjáhald hans með vændiskonum á meðan eiginkona hans var ólétt. Í kjölfarið gekk honum illa að ná sér á strik með United og var tekinn úr byrjunarliðinu. Ferguson sagði að það væri vegna ökklameiðsla. Hins vegar sagði Rooney eftir leik Englands og Svartfjallalands í vikunni að ökklinn hefði ekkert angrað hann í haust - hann væri heill heilsu. Engu að síður var Rooney aftur kominn á bekkinn er United gerði 2-2 jafntefli við West Brom í gær. Hann kom inn á sem varamaður þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka. Þó nokkur dæmi eru um að leikmenn hafi verið seldir frá United eftir að hafa lent upp á kant við Ferguson. Frægasta dæmið er sjálfsagt þegar að David Beckham var seldur til Real Madrid.
Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Fleiri fréttir Crystal Palace - Tottenham | Margir í banni hjá gestunum Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Sjá meira