Með hreyflana fulla af mávum Óli Tynes skrifar 11. nóvember 2010 14:26 Birdie namm namm.
Boeing 757 þota frá Thomas Cook fór í gegnum mikið mávager í flugtaki frá Tyrklandi til Bretlands án þess að flugmennirnir gerðu sér grein fyrir hversu alvarlegt það var. Yfir 230 farþegar voru um borð. Flugmennirnir heyrðu dynki þegar þeir flugu í gegnum mávagerið og tilkynntu um það til flugumferðarstjórnarinnar. Mælitæki sýndu hinsvegar engin merki um að neitt væri að. Það sást að vísu að titringur jókst í hægri hreyfli í skamma stund. En það jafnaði sig og þá var flogið áfram og lent í Manchester. Það flug var tíðindalaust. Það var ekki fyrr en síðar sem flugmennirnir fréttu af því að sægur af dauðum mávum hefði fundist í flugtaksstefnunni. Og það var ekki fyrr en eftir lendingu að það kom í ljós að það var sprunga í ratsjárhlíf á nefi vélarinnar. Einnig voru lendingarljós brotin og margar beyglur á loftinntökum hreyflanna. Þá voru tætlur af máfum í hjólabúnaði vélarinnar. Þetta gerðist í júní í sumar og nú liggur fyrir skýrsla frá rannsóknarnefnd flugslysa. Þar segir að ljóst sé að margir fuglar hafi farið í gegnum báða hreyfla vélarinnar.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira