Innlent

Brotinn eftir átök á pitsustað

Átök brutust út meðal tveggja starfsmanna pitsu­staðar í Breiðholti í hádeginu í fyrradag sem leiddu til þess að annar þeirra handleggsbrotnaði.

Ekki liggur fyrir hvað olli því að mönnunum sinnaðist. Slagsmálin bárust út á bílastæði fyrir utan staðinn og að endingu þurfti að flytja annan manninn á slysadeild, handleggsbrotinn og með áverka í andliti.

Báðir eru mennirnir af erlendum uppruna. Árásarmaðurinn er á fertugsaldri, en sá slasaði á þrítugsaldri. Lögregla hefur ekki náð tali af þeim slasaða til að glöggva sig á atburðarásinni. - sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×