Þjóðlífið lamað í sólarhring 11. febrúar 2010 05:00 Mótmæli í Aþenu „Ég borga ekki“ stendur á borðanum sem fólkið heldur fyrir framan sig.nordicphotos/AFP
Opinber þjónusta lá nánast algerlega niðri í Grikklandi í gær þegar efnt var til sólarhrings verkfalls til að mótmæla fyrirhuguðum aðhaldsaðgerðum stjórnvalda. Einungis lágmarksstarfsemi var haldið uppi á sjúkrahúsum, en læknar, kennarar, flugumferðarstjórar, tollafgreiðslumenn og aðrir opinberir starfsmenn mættu ekki til vinnu. George Papandreou forsætisráðherra og ríkisstjórn hans glíma við gífurlegan skuldavanda ríkisins og hafa kynnt aðhaldsaðgerðir sem felast í því að laun ríkisstarfsmanna verða fryst, hætt verður að ráða í stöður sem losna, kaupaukar og styrkir falla niður auk þess sem eftirlaunaaldur verður hækkaður um tvö ár, úr 61 í 63 ára. „Þetta er stríð gegn starfsfólkinu og við ætlum að svara með stríði, með stanslausri baráttu þangað til þessi stefna verður aflögð,“ segir Christos Katsiotis, fulltrúi verkalýðsfélags sem tengist kommúnistaflokki landsins. Papandreou forsætisráðherra segist hins vegar staðráðinn í að halda áfram með aðhaldsaðgerðirnar. Óvenju lítil þátttaka var í tveimur mótmælagöngum, sem efnt var til í höfuðborginni Aþenu í gær. Um sjö þúsund manns mættu til leiks, en algengt er að tugir þúsunda taki þátt í mótmælafundum á vegum verkalýðsfélaganna. - gb
Mest lesið Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Tekinn af lífi fyrir að myrða stúlkubarn við „særingu“ Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru Ekki hægt að staðfesta drónaflug við Álaborgarflugvöll Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Segist ekki munu leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Keppast við að ákæra Comey Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Flugvellinum í Álaborg lokað vegna drónaflugs Segja árásina hafa beinst gegn ICE Pútín auki einfaldlega stríðsreksturinn verði hann ekki stöðvaður Sprenging í Osló talin tengjast sænsku glæpagengi Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Biðjast afsökunar á „svörtum kafla“ í sögu Danmerkur og Grænlands Kenna Trump-liðum um bæði rúllustigann og textavélina Ekki staðfest hvort það hafi verið drónar sem röskuðu flugumferð í Osló Ekki pappírstígur heldur alvöru björn Sjá meira