Vilja ganga inn í ESB vegna fisksins 15. febrúar 2010 06:00 Selurinn snæðir. Samband strandveiðimanna í Nuuk hafa ályktað einróma að Grænland eigi að endurskoða afstöðu sína til ESB, því sambandið hefði ekki bannað selveiðar innansambandsmanna. Nordicphotos/ap
Samband strandveiðimanna í Nuuk, NAPP, telur að Grænlendingar geti ekki lengur staðið utan við ESB. Ein helsta ástæða þess að Grænland dró sig út úr ESB árið 1985 var sú að Grænlendingar töldu sig geta betur farið með fiskveiðistjórnun en það sem þá hét Evrópubandalagið. Lars Mattæussen, formaður sambandsins, segir í viðtali við grænlenska blaðið Sermitsiaq að þetta eigi ekki lengur við: „Við þurfum að viðurkenna að fiskveiðistjórnunin hefur ekki batnað, og að örfáir einstaklingar ráða yfir öllum botnfiskveiðum.“ Einnig spilar inn í hjá sjómönnunum að brátt skellur á bann í ESB-ríkjum við innflutningi á grænlensku selskinni. Formaður sambands sjómannanna telur að innan ESB hefðu þeir verið í betri aðstöðu til að hafa áhrif á þessa ákvörðun. „ESB var skapað til að verja hagsmuni aðildarríkja. Við teljum að ESB hefði ekki tekið ákvörðun sem hefði skaðað hagsmuni aðildarríkis,“ segir Mattæussen. Einnig hefðu innviðir landsins notið góðs af aðild, því þá hefðu styrkir fengist úr þróunarsjóðum sambandsins. Meirihluti Landssambands grænlenskra fiski- og veiðimanna, KNAPK, hafnaði ESB-aðild fyrir sitt leyti í fyrra, og var bann ESB við hvalveiðum, selskinnsölu og breytingar á tollalögum meðal ástæðna sem tilgreindar voru.- kóþ
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent Fleiri fréttir Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sjá meira