Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, óskaði í morgun á fundi sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar eftir því að haldinn verði sérstakur fundur nefndarinnar í tilefni af áliti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands.
„Fram kemur í greinargerð framkvæmdastjórnarinnar að áhrif ESB aðildar á íslenskan sjávarútveg og landbúnaðar yrðu geysilega víðtæk. Ég bað um að sérstaklega yrðu kallaðir fyrir nefndina fulltrúar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins auk formanna þeirra nefnda sem utanríkisráðherra skipaði til þess að halda sérstaklega utan um málefni sjávarútvegs og landbúnaðar," segir Einar í tilkynningu.
„Mjög brýnt er að sú nefnd Alþingis sem fer með þessa málaflokka fái þess kost að fylgjast með framvindu málsins og fá skýr svör um hvernig ætlunin sé að halda á hinum mikilvægu hagsmunum þessara þýðingarmiklu atvinnuvega okkar."
Einar óskar eftir fundi
