Vonbrigði í stað aðdáunar 20. janúar 2010 00:45 Bandaríkjaforseti Obama hefur enn ekki komið í verk neinum af helstu baráttumálum sínum.fréttablaðið/AP
Vinsældir Baracks Obama Bandaríkjaforseta hafa dvínað töluvert frá þeim hæðum sem þær voru í þegar hann tók við embætti fyrir réttu ári. Um það bil fimmtíu prósent eru þó enn ánægð með störf hans, þótt prósentan rokki eitthvað til eftir skoðanakönnunum. Þótt ár sé liðið hefur honum ekki tekist að hrinda í framkvæmd neinum af þeim helstu málum sem hann lagði áherslu á í kosningabaráttunni. Í þýska tímaritinu Spiegel er fullyrt að í stað aðdáunar sé fólk farið að vorkenna honum. Marga er til dæmis farið að lengja eftir því að hann loki Guantánamo-fangabúðunum á Kúbu, sem hann lofaði að gera innan árs eftir að hann tók við, og ástandið í Afganistan fer stöðugt versnandi. Meira að segja ríkti í gær veruleg óvissa um örlög heilbrigðisfrumvarpsins, sem tryggja átti nánast öllum Bandaríkjamönnum sjúkratryggingar. Örlög frumvarpsins réðust af úrslitum aukakosninga í Massachusetts um þingsæti Edwards Kennedy í öldungadeild Bandaríkjaþings. Hafi repúblikanar sigrað, eins og skoðanakannanir bentu til, vantar demókrata eitt atkvæði í deildinni til að tryggja frumvarpinu endanlega samþykkt.- gb
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira