Innlent

Lítill áhugi á stjórnlagaþingi fyrir norðan

Áhugi á fyrirhuguðu stjórnlagaþingi á meðal íbúa á Norðurlandi vestra virðist vera lítill sem enginn. Fréttamiðillinn Feykir greinir frá því að um tíu manns hafi mætt á boðaðan kynningarfund um þingið sem haldinn var í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Sauðárkróki. Í fundarboði voru allir „hvattir til að mæta og láta rödd sína heyrast", en áhugi á málinu virðist ekki mikill þar nyrðra.

Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út á mánudaginn kemur.

Frétt Feykis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×