Voru hársbreidd frá því að ná bin Laden 14. september 2010 08:16 Osama bin Laden.
Vestrænar leyniþjónustur komust mun nær því að handsama Osama bin Laden eftir ellefta september en áður hefur verið talið. Fyrrverandi yfirmaður hjá evrópskri leyniþjónustu sem vill ekki láta nafns síns getið segir í samtali við CNN fréttastofuna að á árunum 2003 og 2004 hafi uppljóstrari innan raða al - Kaída hryðjuverkasamtakanna látið vestrænum leyniþjónustumönnum í té mikið magn upplýsinga um dvalarstaði bin Ladens, mannsins sem sagður er hafa skipulagt hryðjuverkaárásir á Bandaríkin árið 2001. Þrátt fyrir þetta gat bin Laden forðast handtöku þar sem hann færði sig reglulega úr stað og skipti um felustað. Níu ár eru nú liðin síðan Bin Laden slapp frá Tora Bora fjallavirkinu í Afganistan áður en loftárásir Bandaríkjamanna grönduðu því að mestu leyti og síðan þá hefur hann verið á stöðugum flótta. Samkvæmt upplýsingum uppljóstrarans hélt bin Laden sig að mestu í Pakistan næstu árin á eftir og faldi sig í fjallahéruðum og afskektum þorpum. Uppljóstrarinn fullyrðir einnig að hryðjuverkaleiðtoginn hafi nokkrum sinnum farið í leiðangra yfir landamærin til Afganistans, þrátt fyrir að þar hefðu verið tugþúsundir bandarískra hermanna á þeim tíma. Vestrænu leyniþjónusturnar virðast hins vegar ávallt hafa verið einu skrefi á eftir Osama og stundum munaði aðeins sólarhring á því að næðist í skottið á honum að hans sögn. Uppljóstrarinn hætti síðan að veita upplýsingarnar í lok árs 2004 og eftir það minnkaði upplýsingaflæðið til muna.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Sjá meira