Innlent

Veskjaþjófur handtekinn í Skeifunni

Mynd/GVA

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni í hádeginu í gær. Sá stal peningaveski úr verslun og reyndi síðan að komast undan á hlaupum.

Maðurinn komst hinsvegar ekki langt og var gripinn skammt frá. Veskinu var komið aftur í réttar hendur en þjófurinn, sem var í annarlegu ástandi, var fluttur í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×