Ekkert eftirlit með rafsegulsviði Helga Arnardóttir skrifar 23. febrúar 2010 13:12 Drífa Hjartardóttir. Vill rannsóknir á rafsegulmengun.
Ekkert eftirlit er haft með rafsegulsviði á vinnustöðum eins og með hljóð-og loftmengun og eru engar reglugerðir til um það hér á landi. Forstjóri Vinnueftirlitsins segir mikilvægt að settar verðir slíkar reglur og er til í samstarf með Geislavörnum ríkisins. Drífa Hjartardóttir fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði sjö sinnum fram þingsályktun um að rannsóknir yrðu gerðar á áhrifum rafsegulsviðs á mannslíkamann af völdum rafmagnsveitulína, orkuveitna, spennustöðva og fjarskiptamastra sérstaklega með tilliti til nýgengis krabbameins. Þingsályktunin dagaði alltaf uppi í nefnd. Á mörgum vinnustöðum getur rafsegulsvið af völdum rafmagnstækja oft verið hátt. Ekkert eftirlit er haft með því. „Um þetta gilda ekki neinar reglur hér á landi þannig að það er ekki formlegt og ákveðið eftirlit með þessum á vinnustöðum með sama hætti og með hávaða- og loftmengun," segir Eyjólfur Þór Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlitsins. Tekið sé mið af vinnuverndarreglum á evrópska efnahagssvæðinu og núna sé reglugerð í smíðum um rafsegulsvið. Eyjólfur gerir ráð fyrir að þær líti dagsins ljós eftir tvö ár. Eyjólfur telur ríka þörf á slíkum reglum og eftirlit eigi að vera með þessum málum. Þetta sé töluvert umdeilt mál. Annars sé það hlutverk félags- og tryggingamálaráðuneytisins að setja slíkar reglur hér á landi. Drífa lagði til í hádegisfréttum í gær að Geislavarnir ríkisins, Vinnueftirlitið, löggildingarstofa og Orkustofnun ynnu að þessum málum í sameiningu. Eyjólfur segir það góða hugmynd. „Við bíðum eftir því að reglugerðir líti dagsins ljós um þessi mál og við erum að sjálfsögðu reiðubúin til samstarfs um það," segir Eyjólfur.
Mest lesið Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Innlent Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Innlent Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Innlent Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Erlent Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir Innlent Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Erlent „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Innlent Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Erlent Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Erlent Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Innlent Fleiri fréttir Grafalvarleg staða í Danmörku, trampólínlægð og hundaflaut Viðvörunarstig hækkað: Auknar líkur á gosi Refsing fyrir að nauðga þroskaskertum manni milduð Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Stærðarinnar grjót féll á fjölfarinn veg Bein útsending: Farið yfir það nýjasta í krabbameinsrannsóknum „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Skæð fuglaflensa greindist á Norðurlandi Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Þingmenn ræða stjórnlausa veðmálastarfsemi: Íslendingar Evrópumeistarar Stórt framfaraskref að færa Blóðbankann í Kringluna Austurstræti orðið að göngugötu Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Fyrsta trampólínlægðin væntanleg á morgun Dóttirin fær einungis að mæta einu sinni í viku í frístund Drónar í Danaveldi og Blóðbankinn opnar í Kringlunni „Skoðun mín skiptir ekki máli“ Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir 3,2 stiga skjálfti í Mýrdalsjökli Óskaði aðstoðar með gríðarstóran hníf Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Löng bið Haraldar, umdeild kynjafræði og íslenska í útrýmingarhættu Borgin leggur bílstjórum línurnar Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Sjá meira