Ísland hefur fjölmargt að bjóða ESB 6. nóvember 2010 08:00 Framkvæmdastjórn ESB er ánægð með gengið í stækkunarferlinu en áréttar að enn sé margt óunnið. NordicPhotos/Getty
Aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) gæti komið sér vel fyrir sambandið, sérstaklega hvað varðar aðkomu að norðurheimskautssvæðinu. Þetta verður meðal þess sem mun koma fram í árlegri áfangaskýrslu framkvæmdastjórnar ESB sem kemur út í næstu viku, en kaflar úr henni hafa þegar lekið í fjölmiðla. Ísland er talið hafa komið mun betur reiðubúið að samningaborðinu heldur en Balkanlöndin sem áður tilheyrðu Júgóslavíu og Tyrkland. Þó sé viðbúið að erfitt geti reynst að finna lausn á málum tengdum fiskveiðum og Icesave. Framkvæmdastjórnin hefur meiri áhyggjur af Balkanlöndunum í hópi umsækjenda. Meðal annars hafi nokkuð hægt á umbótum í ríkjunum og víða sé vegið að tjáningarfrelsi og frjálsri fjölmiðlun. Til dæmis eru enn deilur um stjórnarfar í Bosníu-Hersegóvínu, Grikkir eru ósáttir við nafn Makedóníu og óvissa er enn um stöðu Kosovo. Í skýrslunni eru einnig tíundaðar áhyggjur af tjáningarfrelsi og frelsi fjölmiðla í Balkanríkjunum. Þar viðgengst enn ofbeldi gegn blaðamönnum og sjálfstæði ritstjórna er víða ógnað af pólitískum öflum. Króatar þykja þó hafa náð töluverðum árangri á vegferð sinni að ESB-aðild og ef þeir ná að semja um fyrirkomulag á skipasmíðaiðnaði sínum og auka sjálfstæði dómstóla geta þeir verið vongóðir um að komast inn árið 2012. Framkvæmdastjórnin er þrátt fyrir allt mjög jákvæð fyrir frekari stækkun ESB og tíundar kosti þess að fjölga meðlimum. Með auknum krafti í stækkunarferlinu og fleiri meðlimum styrkist staða sambandsins á alþjóðlegum vettvangi. - þj
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York Sjá meira