Lyfti ekki litlafingri gegn Ögmundi 23. febrúar 2010 05:30 Steingrímur J. Sigfússon Mynd/Anton
Þótt síðustu misseri hafi verið erfið og einstök deilumál hafi komið upp er það mikill misskilningur að VG eigi í sérstökum innanflokksvandræðum þessa dagana, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. Opinská skoðanaskipti séu hluti af hefð flokksins og menningu. Í fréttaskýringu blaðsins í gær var greint frá kergju meðal flokksmanna og sér í lagi milli stuðningsfólks Ögmundar Jónassonar annars vegar og Steingrímsmanna hins vegar. Meðal annars var rætt um að fólk Steingrímsmegin hefði barist gegn fólki Ögmundarmegin í nýloknu forvali. Spurður hvort hann kannist við þetta og hafi sjálfur komið að máli, segir Steingrímur: „Ég lyfti ekki litlafingri og kom ekki nálægt þessum prófkjörum og hef aldrei gert eftir að ég varð formaður. Ég held það séu einhver undantekningartilvik sem menn eru að vitna í. Hvað einhverjir segja í símtölum sín á milli, það er ómögulegt að elta ólar við það, en auðvitað er það þannig að það hriktir oft í flokkum þegar farið er í forvöl." Fjarstæðukennt sé að í VG séu skýrar línur flokksmanna sem megi skipta í arma, heldur skerist línur á ýmsan hátt, eftir málefnum eða frambjóðendum hverju sinni. Auðvitað sé óþol í fólki gagnvart ríkisstjórninni og þess vænst að hún komi fleiri málum í gang. „En ég tel að það sé mikill og eindreginn stuðningur í flokknum um að við höldum áfram í ríkisstjórn," segir Steingrímur. Ögmundur Jónasson segir, spurður um ástand flokksins, að það væri óheiðarlegt fyrir mann sem fór úr ríkisstjórn vegna ágreinings að láta sem ekkert hafi á bjátað í flokknum: „En ég er sannfærður um að ef menn einblína á hugsjónir okkar og sameiginleg markmið takist okkur að yfirstíga tímabundna erfiðleika."- kóþ
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Fleiri fréttir Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Sjá meira