Hreiðar og Sigurður gætu þurft að borga á þriðja milljarð 23. febrúar 2010 18:59
Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson gætu þurft að greiða skattinum á þriðja milljarð króna úr eigin vasa vegna niðurfellinga á lánum. Reiði braust út hjá almenningi þegar fregnaðist að stjórn Kaupþings hefði rétt fyrir hrun fellt niður ábyrgðir starfsmanna sem fengu lán hjá Kaupþingi til að kaupa í Kaupþingi. Fram kom í fréttum okkar í gær gætu þeir þurft að greiða allt að 17,5 milljarða króna í skatt af niðurfellingunni eftir að skattayfirvöld komust að þeirri niðurstöðu að hún væri skattskyld. Samkvæmt heimildum fréttastofu getur hópur lykilstarfsmanna hjá nokkrum öðrum stórfyrirtækjum, meðal annars fjármálafyrirtækjum, búist við viðlíka reikningi frá skattinum. Eitt þeirra hefur þegar skotið svona máli til yfirskattanefndar. Verði skattskylda niðurstaðan, fer skattprósentan eftir gjalddaga lánanna. En til að átta sig á upphæðunum, miðum við hér við 37 prósenta skatt. Upphæðir lánanna, birtust flestar í DV upp úr lánabók Kaupþings frá 2006 - lánin hafa að líkindum hækkað verulega síðan þá. Því gætu menn þurft að borga mun meira, en hér segir. Helgi Sigurðsson gæti þurft að greiða minnst 166 milljónir til baka til skattsins, Bjarki Diego nær 240, Kristján Arason um 330, Steingrímur Kárason um 370 milljónir, Helgi Þór Bergs rúmar 400, Ármann Þorvaldsson höfundur Ævintýraeyjunnar vel yfir hálfan milljarð króna, Þorvaldur L. Sigurjónsson tæpar 600 milljónir, Ingólfur Helgason yfir sex hundruð milljónir, Ingvar Vilhjálmsson álíka mikið, Magnús Guðmundsson um 850 milljónir og svo eru það æðstu stjórnendurnir tveir. Fyrir ári var áætlað að lán þeirra vegna hlutabréfakaupanna voru komin í um 7 milljarða króna. Það þýðir að hvor um sig þarf að líkindum að punga út upp undir 2,6 milljarða króna. Fyrir þá upphæð mætti til dæmis kaupa um 50 væn einbýlishús í Reykjavík. Ríkissjóður myndi gildna af þessum upphæðum en þó er ekkert í hendi, því yfirskattanefnd hefur ekki skorið úr um skattskyldu í svona máli og því enn óvíst hvort eða hvenær starfsmenn Kaupþings borgi þennan skatt eður ei.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Sjá meira