Neyðarhjálpin berst hægt til íbúa á Haítí 19. janúar 2010 02:15 Þjófar á hraðferð Íbúar á Haítí eru margir orðnir langeygir eftir neyðarhjálpinni og grípa því til þess ráðs að hnupla hverju því sem hendi er næst. nordicphotos/AFP
Þrátt fyrir stöðugan straum lækna, hjálparstarfsmanna og hermanna til Haítí eiga íbúar margir hverjir erfitt með að finna vatnssopa og matarbita. Vaxandi óþolinmæði gætir hjá mörgum íbúanna vegna seinagangsins. Þjófnaður eykst dag frá degi og ofbeldi sömuleiðis. Nokkrir menn hafa hreinlega verið drepnir á götum úti vegna gruns um að þeir hafi stundað gripdeildir. Óeirðalögreglan á Haítí beitti táragasi til að dreifa mannfjöldanum þegar kveikt hafði verið í fjölda verslana í miðborg Port-au-Prince. „Okkur hefur verið skipað að skjóta ekki á fólk nema það sé algerlega nauðsynlegt,“ sagði Pierre Roger, lögreglumaður á Haítí. „Við erum of fá og þetta fólk er of örvæntingarfullt.“ Margir íbúar bæjarins reiddust því að hermenn og öryggisverðir séu fluttir til landsins til að tryggja öryggi hjálparstarfsfólks í staðinn fyrir að nota flugvélarnar til að flytja þangað hjálpargögn. „Við þurfum ekki hernaðaraðstoð. Það sem við þurfum er matur og húsaskjól,“ hrópaði ungur maður í áttina að Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem kom í heimsókn til Port-au-Prince á sunnudag. „Við erum að deyja,“ bætti ung kona við. Hjálparstofnanir telja að jarðskjálftinn mikli á þriðjudag hafi kostað 50 til 100 þúsund manns lífið. Ken Keen, yfirmaður bandaríska hersins á Haítí, telur hins vegar að 200 þúsund hafi látist. Úti á götum lá fólk enn fyrir dauðanum. Sært og sjúkt fólk var flutt á hjólbörum eða hreinlega á baki annarra á læknastöðvar sem komið hefur verið upp til bráðabirgða víðs vegar um borgina. Fjöldi þeirra sem misstu heimili sitt er svo mikill að Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna ráðgerir nú að setja upp tjaldbúðir fyrir hundrað þúsund manns í útjaðri höfuðborgarinnar. Erfiðar samgöngur eiga stóran þátt í því hve hægt hefur gengið að koma hjálpinni til fólks. Ken Keen, yfirmaður bandaríska herliðsins á Haítí, viðurkennir að flugvöllurinn í Port-au-Prince, með aðeins eina flugbraut og takmarkað pláss fyrir flugvélar utan brautarinnar, afkasti engan veginn nógu miklu. Bandaríkjaher hefur tekið alla stjórn á flugvellinum í sínar hendur og uppskorið gagnrýni úr ýmsum áttum, meðal annars frá sumum hjálparsamtökum. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira