Innlent

Á þriðja tug björgunarsveitamanna aðstoða

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgunarsveitamenn eru á leið til að aðstoða slasaðan hestamann í Þorgeirsfirði.
Björgunarsveitamenn eru á leið til að aðstoða slasaðan hestamann í Þorgeirsfirði.
Á þriðja tug björgunarsveitamanna taka þátt í að bjarga hestamanninum sem slasaðist í Þorgeirsfirði í kvöld og eru þeir á leið á slysstað. Þorgeirsfjörður er fyrir norðan, á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfanda.

Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg er hægt að komast langleiðina á slysstaðinn á bíl en síðan þarf að ganga yfir hálsinn frá Hvalvatnsfirði yfir í Þorgeirsfjörð. Áætlað er að fyrstu björgunarmenn komi á staðinn rétt eftir klukkan ellefu í kvöld. Ekki er vitað um líðan mannsins.

Eins og Vísir sagði frá fyrr í kvöld hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið kölluð út og er búist við að hún nái á slysstað á svipuðum tíma og björgunarsveitamennirnir.




Tengdar fréttir

Þyrla kölluð út vegna hestaslyss

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Þorgeirsfjörð. Grunur leikur á að maður hafi fallið af hestbaki og þótti ráðlegt að óska eftir aðstoð þyrlunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×