Innlent

Töluverðar skemmdir við Landakotsskóla

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slökkviliið var kallað að Landakotsskóla í kvöld. Mynd/ Egill Aðalsteinsson.
Slökkviliið var kallað að Landakotsskóla í kvöld. Mynd/ Egill Aðalsteinsson.
Töluverðar skemmdir urðu á tréverki fyrir utan Landakotsskóla þegar eldur kviknaði þar á níunda tímanum í kvöld þannig að nokkurn reyk lagði frá húsinu. Útlit er fyrir að þarna hafi verið kveikt í. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi fyrst allar sínar stöðvar á staðinn en síðar kom í ljós að skemmdirnar voru minni en mönnum sýndist í upphafi og því voru allar stöðvar afturkallaðar nema ein.


Tengdar fréttir

Eldur kviknaði í Landakotsskóla

Eldur kviknaði við Landakotsskóla nú á níunda tímanum í kvöld. Í fyrstu var talið að um mikinn eld væri að ræða og voru allar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu ræstar út. Síðar kom í ljós að eldurinn var minniháttar og var því mest allt slökkviliðið afturkallað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×