Eiður Smári í viðtali í The Sun Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2010 19:00 Eiður Smári.
Eiður Smári Guðjohnsen var í ítarlegu viðtali í breska götublaðinu The Sun í dag þar sem hann rifjaði upp tímabilið þegar hann varð fyrst enskur meistari með Chelsea. Eiður var lykilmaður með Chelsea tímabilið 2004-5 þegar liðið varð meistari í fyrsta sinn í 50 ár. Hann rifjaði upp daginn sem liðið tryggði sér titilinn en það var á útivelli gegn hans gamla félagi, Bolton. „Þetta var fyrsti titillinn minn og ég held reyndar að þetta hafi verið fyrsti titillinn hjá öllum strákunum," sagði Eiður Smári. „Jose Mourinho lét alltaf leikmenn halda ræðu fyrir liðið fyrir leikina. Ég gerði það fyrir fyrsta leik tímabilsins og ég var ótrúlega stressaður - það hefði ekki verið jafn taugatrekkjandi að spila fyrir framan 100 þúsund áhorfendur," rifjar Eiður Smári upp. „En þetta var fyrir leik gegn Manchester United. Ég sagði eitthvað á þá leið að það væru 38 þrep sem þyrfti að klífa til að vinna þessa deild. Þetta væri eitt það allra mikilvægasta - að vinna Manchester United. Ég sagði að við skyldum því fara út, byrja að klífa þessi þrep og vinna leikinn. Og við unnum," sagði Eiður. „Svo, í apríl, bað Jose mig um að gera þetta aftur fyrir leikinn Bolton á Reebok-vellinum. Með sigri yrðum við meistarar. Ég byrjaði rólega og sagði: „Hér erum við staddir, einum leik frá meistaratitlinum. Ef við vinnum þennan leik verður þetta besti dagur í lífum okkar allra." En svo byrjaði ég að öskra og blóta og þetta fór allt úr skorðum. En þetta virkaði þó, þrátt fyrir það."
Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Sjá meira