Innlent

Reykjanesbær fær mest úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga

Mynd/GVA
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun framlaga til jöfnunar á tekjutapi einstakra sveitarfélaga á árinu 2010 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti. Reykjanesbær fær hæsta framlagið.

Við tillögugerðina er tekið mið af nýju fasteignamati er tók gildi 31. desember hvað íbúðarhúsnæði í sveitarfélögum varðar.Áætluð heildarúthlutun framlaganna í ár nemur rúmlega 2,6 milljörðum króna og greiðir Jöfnunarsjóður 60% framlaganna fyrirfram mánuðina febrúar til júní. Heildarþörf sveitarfélaganna var rúmlega 4,6 milljarðar.

Reykjanesbær fær rúmlega 260 milljónir, Akureyri 244 milljónir, Fjarðabyggð 136 milljónir, Ísafjarðarbær 122 og Skagafjörður 104.

Áætluð framlög vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti 2010 er hægt að sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×