Innlent

Gera heimildarmynd um Ísland

Andri Ólafsson skrifar
Tveir breskir kvikmyndagerðarmenn seldu aleigu sínu, pökkuðu niður öllu sem þeir áttu og fluttu til Íslands til þess að gera heimildarmynd um land og þjóð.

Myndin fjallar ekki um hrunið og orsakir þess. heldur vonina, bjartsýnina og grasrótina sem að sögn kvikmyndagerðarmannanna lifir góðu lífi hér á landi.

Sögurnar eru af venjulegum íslendingum sem kljást við veruleikann frá degi til dags með stóískri ró að mati bretanna. Þeirsegja frumkvöðlaeðlið ennþá sterkt í íslendinum.

Myndin er nánast tilbúin en en peningarnir eru að vera búnir. Bretarnir ætla hins vegar ekki að leggja árar í bát, enda búnir að fara átta sinnum umhverfis ísland og lagt allt að veði. Þau safna nú peningum svo hægt sé að ljúka við myndina. Hægt er að sjá stiklu úr myndinni og fræðast nánaur um hvernig hægt sé að leggja henni lið á síðunni kickstarter.com.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×