Bygging nýs fangelsis boðin út 1. júlí 2010 10:42 Ragna Árnadóttir ráðherra
Bygging nýs gæsluvarðhalds- og skammtímavistunarfangelsis verður boðin út fyrir lok september næstkomandi. Þá hefur dómsmála- og mannréttindaráðherra skipað nefnd sem ætlað er að gera tillögur að langtímaáætlun á sviði fullnustumála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Í hinu nýja fangelsi er gert ráð fyrir 50 fangelsisrýmum með deild fyrir kvenfanga. Undirbúningur að þessari framkvæmd hefur staðið yfir í langan tíma en á fundi ríkisstjórnarinnar hinn 30. mars síðastliðinn var samþykkt tillaga Rögnu Árnadóttur dómsmála- og mannréttindaráðherra um að hefja þessa framkvæmd í haust. Ríkiskaup munu sjá um útboðið fyrir hönd ríkissjóðs en miðað er við að bjóðendur byggi húsið og leigi ríkinu. Vinna við forathugun hinnar nýju fangelsisbyggingar er að mestu lokið. Nú er hafin vinna við gerð frumáætlunar og uppdráttar að fangelsinu en því er meðal annars ætlað að koma í stað Hegningarhússins á Skólavörðustíg og fangelsisins í Kópavogi. Staðsetning fangelsins hefur ekki verið ákveðin. Afplánunarrými í fangelsum hér á landi eru nú 149 talsins. Fyrirhugað fangelsi er liður í aðgerðum stjórnvalda til að bæta úr brýnni þörf fyrir fleiri fangelsisrými. Aðbúnaður fanga mun batna og öryggi starfsfólks verður tryggara í byggingu sem hönnuð er frá grunni sem fangelsi. Þá er rekstur sérhannaðs fangelsis mun hagkvæmari en bygginga sem ekki hafa upphaflega verið hannaðar sem fangelsi. Nefndin sem dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur skipað mun hafa samráð við þá sem vinna að málum er lúta að fullnustu refsinga og fangelsismálum. Hún mun skila tillögum að langtímauppbyggingu fangelsa og drögum að frumvarpi, sem felur í sér heildarendurskoðun á lögum um fullnustu refsinga, eigi síðar en í júní 2011.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Velja Viljandi villt Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Fleiri fréttir Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Sjá meira