Hægláta kvenhetjan sem enginn vissi um Óli Tynes skrifar 14. september 2010 13:45 Eileen Nearne.
Þegar Eileen Nearne lést á heimili sínu fyrr í þessum mánuði fannst enginn ættingi til þess að borga fyrir útför hennar. Þessi 89 ára gamla einsetukona var sögð vera alltaf glaðleg en hún hélt sig mest útaf fyrir sig í strandbænum Torquay sem er um 300 kílómetra vestur af Lundúnum. Það leit því út fyrir að Eileen fengi fátæklingsgröf eins og það er kallað í Bretlandi. Nú hafa hinsvegar samtök uppgjafahermanna tekið mál hennar að sér og hún verður jarðsett með fullum heiðri. Bunki af heiðursmerkjum Þegar verið var að leita að gögnum um ættingja á heimili hennar eftir andlátið fannst bunki af heiðursmerkjum og bréf á frönsku. Það kom í ljós að Eileen hafði verið njósnari hjá Special Operations Executive í síðari heimsstyrjöldinni. Það var leynisveit sem sjálfur Winston Churchill setti á fót til þess að njósna og vinna skemmdarverk að baki víglínunnar í þeim löndum sem nazistar höfðu hertekið. Í klóm Gestapo Eileen talaði reiprennandi frönsku og árið 1944 var hún send til Frakklands, þá 23 ára gömul. Hún lenti í klónum á Gestapo með talstöð í fórum sínum og var pyntuð. Henni tókst að sannfæra þá um að hún væri bara burðardýr sem ekkert vissi um njósnir og var sleppt. Eileen var tvisvar til viðbótar handtekin af SS og send annarsvegar Ravensbruck og hinsvegar í þrælabúðir í Póllandi. Flótti og feluleikur Henni tókst í bæði skiptin að komast undan og síðustu mánuði stríðsins var hún ásamt tveim vinkonum í felum hjá presti í Leipzig í Þýskalandi sem skaut yfir þær skjólshúsi. Hún kom þaðan úr felum þegar bandarískar hersveitir komu til borgarinnar. Lofsungin í fjölmiðlum Síðan upplýst var um fortíð Eileen Nearne hafa breskir fjölmiðlar lofsungið hana. Meðal annars var hennar getið á leiðarasíðu The Times, sem sagði að ekki væri of seint að heiðra hana. Hætláta einsetukonan í Torquay er loksins orðin hetja.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira