Innlent

Losaði um framtennurnar á karlaklósettinu

Ráðist var á mann inni á karlasalerni á skemmtistaðnum Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardags samkvæmt lögreglunni á Selfossi.

Maðurinn hafði farið inn á snyrtinguna þegar annar maður réðist aftan að honum og hélt honum í taki á meðan félagi hans sló fórnarlambið hnefahögg í andlitið.

Við höggin losnaði um framtennur fórnalambsins. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×