Innlent

Borgarstjóri setur Menningarnótt formlega eftir hádegi

Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, setur Menningarnótt formlega klukkan eitt í dag í tjaldi við Ferðamálastofu Íslands, Geirsgötu 9.

Leiðtogafundur verður við setninguna þegar Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar og Borgarstjóri Reykjavíkur hittast, en Akureyri er gestasveitarfélag hátíðarinnar í ár.

Sjö listamenn frá sjö landshlutum mála sjö metra langt málverk af Íslandi.

Borgarstjóri dregur fyrstu strokuna. Við setninguna syngur kammerkórinn Cantinovum, Ari Eldjárn hefur alvarleg mál í flimtingum og Valgeir Guðjónsson syngur um nauðsyn þess að mála malbikið grænt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×