Enski boltinn

1. deildin: Gylfi og Aron báðir á skotskónum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi Þór er sjóðheitur sem fyrr.
Gylfi Þór er sjóðheitur sem fyrr.

Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson voru báðir á skotskónum í dag í ensku 1. deildinni.

Gylfi skoraði fyrsta mark leiks Leicester og Reading en Gylfi og félagar unnu leikinn, 3-1. Brynjar Björn Gunnarsson var einnig í byrjunarliði Reading en var tekinn af velli í hálfleik.

Aron Einar jafnaði fyrir Coventry gegn Millwall en það dugði ekki til þar sem Millwall vann leikinn, 3-1.

Heiðar Helguson spilaði í 69 mínútur er QPR gerði 2-2 jafntefli gegn Derby á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×