Safna fyrir hjólastólarampi handa fötluðum dreng Erla Hlynsdóttir skrifar 8. október 2010 09:01 Ragnar Emil er lífsglaður drengur og brosmildur
Ragnar Emil Hallgrímsson er þriggja ára drengur sem aðeins nokkurra mánaða gamall greindist með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm. Vegna veikinda sinna þarf Ragnar Emil að nota öndunarvél og fer ferða sinna í rafmagnshjólastól. Þegar Ragnar Emil var greindur með hrörnunarsjúkdóminn SMA-1 var talið að hann næði því ekki að verða tveggja ára. Hann er nú orðinn elstur þeirra sem hafa greinst með sjúkdóminn hér á landi, foreldrum hans til mikillar gleði.Stýrir hjólastólnum sjálfur Ragnar er á leikskóla hluta úr degi þar sem hann getur farið í öndunarvél þegar þörf krefur en hann getur ekki farið í hjólastólnum út af heimili sínu þar sem þar er enginn rampur. Gunnar Þór Sigurjónsson, frændi Ragnars Emils, hefur því í samstarfi við ömmu drengsins og vinkonu þeirra tekið sig til og skipulagt fjáröflun. „Eitt af markmiðunum er að hann geti fengið lítinn ramp þannig að hann getið farið út úr húsinu í hjólastólnum," segir Gunnar Þór. Auk þess þarf að malbika malarplanið sem er fyrir utan húsið til að hægt sé að aka stólnum þar. Stóllinn er rafstýrður og Ragnar Emil getur því sjálfur stýrt honum. Gunnar Þór og ættingjar hans hafa fengið til liðs við sig fjölda sjálfboðaliða sem ætla að fara í verslanir í Hafnarfirði, heimabæ Ragnars Emils, og selja barmmerki.Heldur upp á Rex úr Toy Story Hugmyndin að merkjunum kemur frá ömmu Ragnars Emils en mynd af honum er á hverju merki auk nafns. Hvert merki verður selt á fimm hundruð krónur og lét fjölskyldan búa til þrjú þúsund merki. Gunnar Þór segir Ragnar Emil lífsglaðan dreng þrátt fyrir allt. „Hann brosir mikið," segir hann. Hendurnar eru það eina sem Ragnar Emil hefur góða stjórn á og hefur hann mjög gaman af því að leika sér með fígúrur úr teiknimyndinni Toy Story. „Ég held að uppáhaldið hans sé risaeðlan Rex," segir Gunnar Þór.Haffi Haff selur merki Hann segir fólk hafa tekið því mjög vel þegar þau hafa leitað eftir sjálfboðaliðum til að selja merki en þau þiggja vel nokkra í viðbót. Þeir sem hafa áhuga á að leggja þeim lið með því að selja merki geta haft samband við Gunnar í síma 8665744. Meðal þeirra sem hafa sett sig í samband við Gunnar er tónlistarmaðurinn Haffi Haff sem selur merki í Hafnarfirði í dag. Merkjasalan fer fram frá klukkan tvö og stendur fram á kvöld. Einnig verða seld merki allan daginn á morgun. Ragnar Emil er einnig með söfnunarreikning sem hægt er að leggja inn á. Númerið er: 140-05-015497 og kennitalan 250607-2880. Hægt er að fræðast meira um Ragnar Emil á vefsíðunni hans. Þar má sjá myndband þar sem hann er að æfa sig á rafmagnshjólastólnum.
Mest lesið „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Erlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent Örlög Bayrou ráðast 8. september Erlent Skjálfti við Húsavík Innlent „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga Innlent Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Fleiri fréttir Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Skjálfti við Húsavík Byssan reyndist leikfang „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Staðan ekki alvarleg í Haukadalsá Loka Bröttubrekku í tvo daga „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður að virkilega góðum dreng“ Skýr mynd dregin upp í dómsal og minningarstund Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Kjaraviðræður Sinfó „stefni í rétta átt“ Stöðupróf verði skylda í öllum skólum strax í vor „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Núverandi staða ekki talin vera alvarleg Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Opna Vesturbæjarlaug á morgun en Sundhallargestir þurfa að bíða Tilgangurinn að ná í „easy money“ Jökulhlaupið í rénun Í beinni frá héraðsdómi, unglingadrykkja og áheitakóngur Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Hættir sem ritstjóri Kveiks Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Meirihluti hefur áhyggjur af laxastofninum nema í fjörðunum Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Skýrslur teknar af tíu börnum undir sex ára á síðustu 20 árum Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Sjá meira