Innlent

Neikvæðar fréttir hafa aukið áhugann á Íslandi

Erna Hauksdóttir.
Erna Hauksdóttir. Mynd/Auðunn Níelsson
Neikvæðar fréttir í erlendum fjölmiðlum um bankahrunið á Íslandi hafa aukið áhuga útlendinga á landi og þjóð. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að fréttirnar hafi í raun skilað sér í jákvæðri landkynningu.

Áætlað er að tekjur af erlendum ferðamönnum hafi numið 155 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt samantekt Ferðamálastofu. Þetta er raunaukning upp á rúm 20% á milli ára.

Mikið hefur verið fjallað um Ísland í erlendum fjölmiðlum frá því kreppan skall á haustið 2008. Fyrst um bankahrunið og svo um Icesave.

Íslendingum þykir kannski ekki sú ímynd sem þar er varpað fram af landi og þjóð vera eftirsóknarverð en þvert á allt sem halda mætti hefur þessi umfjöllun skilað sér í jákvæðri landkynningu.

„Það hafa oft fylgt þessu landkynningarmyndir og svo fer fólk inn á netið og sér að gjaldmiðillinn hefur hrunið líka þannig að þetta hefur áreiðanlega hjálpað mikið til," segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Búist er við auknum ferðamannastraumi hingað til lands í sumar og dæmi um að hótel séu nú þegar uppbókuð yfir háannatíma.

Erna segir að það sé þekkt staðreynd í ferðaþjónustu að jafnvel neikvæðar fréttir skili sér í auknum áhuga. „Ísland er þannig land að það eru ekki svo margir í hinum stóra heimi sem hreinlega vita af tilvist þess og þá gerir það gagn vegna þess að þá hefur fólk aldrei heyrt áður minnst á landið og fer og les sig til."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×